Margar aðferðir úr Orði af orði nýtast sem undanfarar kortagerðar, aðferðir samhliða kortagerð og aðferðir að lokinni kortagerð.
Frayer líkan við hugtakagreiningu má nota bæði á undan kortagerð og meðan á henni stendur. KVL aðferðina má nota til að draga fram forþekkingu (K) og skapa væntingar eða setja markmið um kortagerð (V) og í lokin bæta við kortið það sem nemandi hefur lært (L). Krossglímur má nota sem undanfara kortagerðar, einnig má nota þær meðan nemandi lærir nýtt efni - til að draga fram lykilatriði úr efnivið. Krossglímur eru á vissan hátt hugtakakort. Spurningavefur er einfalt kort sem má nýta á svipaðan hátt og KVL sem kveikju og til að draga fram forþekkingu. Afraksturinn er efniviður sem nýtist í frekari kortagerð. Í kjölfar kortagerðar ætti einnig að lýsa efninu, segja frá því, ræða það, nota sem efnivið í ritun o.s.frv. Eflaust koma upp mörg áhugaverð orð til að vinna með sem orð dagsins - hvort sem það er fyrir, meðan eða á eftir kortagerð. |
Hér eru nokkur dæmi um krossglímu.
Fyrir ofan eru nokkrar krossglímur úr dönskukennslu og fyrir neðan krossglíma úr náttúrufræði - lífríki sjávar. Á neðri myndinni eru einnig dæmi um fleiri orðavinnuaðferðir, s.s. orðhlutavinnu og nýsmíði úr þekktum efnivið - líklega ljóði sem tengist náttúrufræði. |