Höfundur vefsíðu hefur boðið upp á námskeið um hugræna kortagerð fyrir skóla eða kennarahópa, hvort sem markmið er að kenna nemendum hana eða nota í kennslu og við undirbúning kennslu, áætlanagerð s.s. gerð annaráætlana o.s.frv.
Miðstöð skólaþróunar við HA sem er samstarfsaðili höfundar býður upp á námskeið í hugrænni kortagerð og innleiðingarferli þar sem hugræn kortagerð er innleidd í skólastarfi og veitir jafnframt ráðgjöf og stuðning við slíkt þróunarstarf. |
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér það frekar vinsamlega hafið samband.
|