Mat á inntaki og formiÞegar kort eru metin þarf að taka tillit til inntaks og forms.
Inntakið þarf að vera til staðar, eins ítarlegt og markmið kalla á. Til greina kemur að skrá lykilatriði og leggja mat á hversu mörg þeirra nemandi gerir grein fyrir (t.d. 8 af 10 atriðum) og hversu ítarlega það er gert (kvarði 1–4). Jafnframt er skynsamlegt að leggja mat á gæði kortanna. Ef það telst mikilvægt að nemendur geti búið til kort sem hefur 3–5 undirþætti, 3–5 raðir í hverjum undirþætti, með viðeigandi tengingu milli þátta, innrömmuð hugtök, skýringar á venslum hugtaka á örvalínur o.s.frv. er auðvelt að leggja mat á það. Kennarar í Orði af orði kennslufræðinni sem m.a. inniheldur hugræna kortagerð hafa ákveðinn matskvarða til hliðsjónar við mat á formi eða gerð kortanna. Tilgangur þess að leggja mat á það er að laða fram sem mest gæði í kortagerðinni. |
|