Hugræn kortagerð
©Guðmundur Engilbertsson 2013
  • Upphafssíða
    • Höfundur
  • Kortagerð
    • Kennsluhugmyndir >
      • Grunnæfing
      • Hugtök og samhengi
      • Tengsl við aðferðir í Orði af orði
    • Mat
  • Myndir
  • Áhugavert efni
  • Námskeið
    • Orð af orði
    • Stök námskeið
  • Fyrirspurnir
Hugstormun
Góð leið til að undirbyggja kortlagningu:
  • Veldu lykilhugtak, t.d. kóngulær og fáðu nemendur, hvern og einn til að skrá niður orð sem tengjast lykilhugtakinu. Hvaða orð eru það? Eru þau hugtök?
  • Nemendur bera saman bækur sínar. Hvað orð hafa margir eða fáir skráð hjá sér?
  • Nemendur deila orðalista með öðrum. Rætt er um hvaða hugtök tengjast best lykilhugtakinu.

Greining á texta
  • Nemendur fá stuttan texta, t.d. úr sögu (10 til 30 setningar) og merkja við öll hugtök sem þeir finna.
  • Hversu oft kemur sama hugtakið fyrir? Hvaða
    hugtök koma oftast fyrir? Hvaða hugtök eru mikilvægust? Hvaða hugtök þarf maður að nota til að lýsa inntaki textans? Hvaða hugtökum má sleppa?
        
  • Merkt er við orðin sem ekki eru hugtök, orð sem merkja ekkert í sjálfu sér.
  • Nemendur deila hugmyndum og ræða. 
  • Hvaða orð koma ekki fram en eru mikilvæg flokkunarhugtök, t.d. ef raða ætti hugtökum í flokka (t.d. útlit, nytjar, tegundir, ...) til að auðvelda kortagerðina. Það flokkast undir aðliggjandi hugtök (imported concepts).
Kortagerð - hugtakakort
  • Eftir hugarflæði og samræður er lykilhugtak
    skráð á mitt blað eða miðja töflu og rammað inn (t.d. með því að setja hring utan um það).
  • Hugtök sem tengjast lykilhugtakinu og standa því næst eru tengd við það með línum og römmuð inn. Stundum þarf að búa til yfirhugtök (t.d. heimkynni, tegundir, útlit ...), orð sem ekki koma endilega fram en eru mikilvæg flokkunarheiti (önnur orð og hugtök raðast undir viðkomandi flokkunarheiti).
  • Orð sem skýra tengsl hugtakanna (tengiorð) eru skráð á tengilínurnar. ​ 

Powered by Create your own unique website with customizable templates.